Skráning á námskeið í maí er hafin!

Skrá mig

Rafrænir reikningar

Hefur þú kynnt þér Rafræna reikninga? 

Við hjá Reglu erum ávallt að leita leiða til að einfalda bókhaldsvinnu. Rafrænir reikningar eru mikið notaðir til að auðvelda og einfalda bókhaldsvinnslu. Ávinningur af notkun rafrænna reikninga skilar sér helst í tímasparnaði og nákvæmni, en með fullkomnum rekjanleika og rafrænum innlestri eru innsláttarvillur úr sögunni.

Uppsetning rafrænna reikninga í Reglu.  

Regla býður upp á rafræna reikninga í gegnum skeytamiðlun. Rafrænir reikningar eru bókhaldsgagn sem uppfyllir kröfur staðlaráðs fyrir rafræna reikninga. Rafrænir reikningar eru gríðarleg hagræðing í bókhaldsvinnslu bæði sendanda og móttakanda reikninga. 

Lestu meira um fjárhagsbókhald í Reglu

Kostnaður við rafræna reikninga í Reglu er 3.200kr. á mánuði og 38kr. á hvert sent eða móttekið skeyti. 

stefan