Fjartenging: við leysum málið með þér
Við tengjumst tölvunni þinni og aðstoðum þig án þess að koma á staðinn. Það sparar bæði tíma og kostnað. Við tengjumst aðeins með þínu samþykki.
Sækja Regla Fjartenging ↓
Fyrir Windows og Mac
- 1Sæktu forritiðOpnaðu skrána og settu Regla Fjartenging upp. Á Mac þarf að gefa leyfi, sjá leiðbeiningar neðar.
- 2Lestu okkur kóðannGefðu þjónustufulltrúa kóðann sem birtist í forritinu.
- 3Samþykktu tengingunaÞú sérð allt sem við gerum og getur slitið tengingunni hvenær sem er.
Sæktu Regla Fjartenging
Veldu stýrikerfið á tölvunni þinni. Notendur Reglu finna sömu hlekki undir Fjartenging inni í kerfinu.
Mac með Apple-örgjörva
Smelltu á Apple-merkið › About This Mac. Stendur „Chip: Apple M1“ eða álíka? Þá er þetta rétta skráin.
Sækja fyrir Mac (Apple)Skrá: .dmg, 28 MB
Mac með Intel-örgjörva
Stendur „Processor: Intel“ undir About This Mac? Þá er þetta rétta skráin.
Sækja fyrir Mac (Intel)Skrá: .dmg, 34 MB
Á Mac: leyfðu forritinu að sýna skjáinn
- Opnaðu „System Settings“ og veldu „Privacy & Security“.
- Kveiktu á forritinu undir „Screen Recording“ (í nýrri útgáfum „Screen & System Audio Recording“). Það getur birst þar sem RustDesk.
- Kveiktu líka á því undir „Accessibility“, svo við getum hjálpað með mús og lyklaborði.
- Lokaðu forritinu og opnaðu það aftur.
Var þér bent á TeamViewer?
TeamViewer verður í boði til 31. desember 2026 á meðan við færum okkur yfir í Regla Fjartenging.
Vantar þig aðstoð? Hringdu í okkur og við hjálpum þér að tengjast.
Hringja í 520 1200