Opens in a new tab
Neyðarnúmer afgreiðslukerfa Reglu: 520-1222

Um Reglu

Regla ehf. var stofnað 12. desember 2008 og hefur verið hluti af Finago-samstæðunni frá október 2026.

Markmið félagsins er að bjóða upp á viðskiptakerfi og þjónustu sem veitir viðskiptavinum okkar aukna sjálfvirkni til að auðvelda rekstur og minnka vinnu hjá fyrirtækjum af öllum stærðum og gerðum.

Félagið býður hugbúnað í áskrift á netinu, eða eins og margir kalla það “í skýinu” og því engin þörf á hýsingu eða rekstri á tölvuþjónum. Þetta leiðir til þess að reksturinn verður hagkvæmari, einfaldari og öruggari.

Kerfin sem Regla býður uppá eru íslensk hönnun og hafa ýmsir sérfræðingar komið að þróun þeirra meðal annars viðskiptafræðingar, bókarar, endurskoðendur, tölvunarfræðingar og löggiltir bókarar.

Þjónusta

Við veitum persónulega og skjóta þjónustu og viljum tryggja okkar viðskiptavinum gott aðgengi að viðskiptakerfum okkar.

Sjálfvirkni

Í þróun á Reglu kerfiseiningum leggjum við mikla áherslu á sem mesta sjálfvirkni til þess að spara okkar viðskiptavinum tíma og kostnað. Engin uppsetning og þú getur byrjað að bóka strax!

Öryggi

Gögnin þín eru vel varin. Öll samskipti eru dulkóðuð og afritun er innifalin. Allar aðgerðir eru skráðar og rekjanlegar, og með öflugum aðgangsstýringum ræður þú hver hefur aðgang að hverju.

Viltu einfalda reksturinn? Einföld og örugg skýjalausn. Meiri sjálfvirkni og minni vinna.

Viltu einfalda reksturinn?
Einföld og örugg skýjalausn. Meiri sjálfvirkni og minni vinna.
Prófa frítt í 30 daga