Greinar og fréttir
Regla gengur til liðs við Finago
Finago hefur undirritað samning um kaup á öllu hlutafé í Reglu. Finago er eitt af leiðandi hugbúnaðarfyrirtækjum Norðurlanda á sviði fjármála og bókhalds. Fyrir viðskiptavini Reglu breytist ekkert í daglegu starfi. Sama teymi, sama þjónusta og sama kerfi.
Með kaupunum verður Regla hluti af Finago-samstæðunni en starfar áfram sem sjálfstætt félag með sama starfsfólki og sömu stjórnendum.
Seljendur eru Hawk Infinity og minnihlutaeigendur Reglu. Gert er ráð fyrir að kaupin gangi í gegn í nóvember, að uppfylltum hefðbundnum skilyrðum.
„Við erum stolt af því sem við höfum byggt upp með viðskiptavinum okkar. Með Finago fáum við sterkan bakhjarl sem gerir okkur kleift að þróa Reglu hraðar og bjóða viðskiptavinum enn betri lausnir, meðal annars á sviði gervigreindar,“ segir Magnús Björnsson, framkvæmdastjóri Reglu.
„Regla hefur byggt upp nútímalegan skýjahugbúnað sem íslensk fyrirtæki og bókhaldsstofur meta mikils,“ segir Lars Engbork, forstjóri Finago.
Hvað þýðir þetta fyrir viðskiptavini Reglu?
- Allt helst eins. Viðskiptavinir nota Reglu áfram eins og áður og kaupin hafa engin áhrif á daglega notkun kerfisins.
- Sama fólkið. Sama teymi sinnir þjónustunni og leiðirnar til að ná í okkur eru óbreyttar.
- Fleiri tækifæri framundan. Sem hluti af Finago fær Regla aðgang að fleiri lausnum og meiri þekkingu, meðal annars á sviði gervigreindar, sem nýtist við áframhaldandi þróun kerfisins.
Ef þú hefur spurningar er þér velkomið að hafa samband við okkur hjá Reglu með því að senda póst á regla@regla.is eða hringja í síma 520-1200.
Lesa má tilkynningu Finago hér.
