Skráning á námskeið í janúar er hafin.

Greinar og fréttir

Fyrirtækjagátt Reglu

Regla kynnir nýja fyrirtækjagátt sem veitir umsjónaraðilum skýra og aðgengilega yfirsýn yfir öll þeirra fyrirtæki.

Fyrirtækjagáttin er viðmót sem veitir heildaryfirsýn yfir fyrirtæki í samstæðu eða í umsjá bókara, og stöðuna á þeim með tilliti til VSK, launa, skilagreina og annara þátta. Áhrifarík leið til þess að auka skilvirkni umsjónaraðila margra fyrirtækja í Reglu. Til dæmis er einfalt að skrá sig beint inn í kerfiseiningar hjá viðskiptavinum og gera breytingar sem uppfæra stöðuna í fyrirtækjagáttinni í rauntíma.

Gáttin sameinar helstu rekstrarupplýsingar á einum stað, þar á meðal stöðu virðisaukaskatts, yfirlit launa og skilagreinar. Þetta gerir notendum kleift að fylgjast með mikilvægum upplýsingum á fljótlegan og skipulegan hátt.

Fyrirtækjagáttin er hönnuð til að styðja við skilvirkt vinnuflæði. Með einum smelli er hægt að fara beint inn í viðeigandi kerfiseiningar hvers viðskiptavinar, sem sparar tíma og minnkar umstang. Allar breytingar sem gerðar eru í þessum einingum uppfærast sjálfkrafa í rauntíma í gáttinni, sem tryggir að yfirsýnin sé alltaf nákvæm og uppfærð.

Fyrirtækjagáttin er frábær kostur fyrir alla umsjónaraðila sem vilja halda enn betur utan fyrirtæki með skilvirkari, notendavænni og nútímalegri leið.