Skráning á námskeið í maí er hafin!

Skrá mig

Breytingar og viðbætur í Reglu

Breytingar og viðbætur í Reglu


Ágæti notandi  Reglu
Við viljum vekja athygli þína á breytingum og viðbótum sem hafa komið í Reglu með síðustu uppfærslum.

Almennt:

  • Í “Handbækur og stillingar” er nú hægt að velja allar handbækur út í eitt pdf skjal.

Bókhald:

  • Í skráningu færslna er hægt að fletta eftir reikningi á pdf formi og lesa innihald reiknings. Ef lestur tekst fyllast út innsláttarsvæði í skráningu og lánadrottnafærsla skráist sjálfkrafa. Reikningurinn geymist sem viðhengi við skráð fylgiskjal og er því alltaf sýnilegur í fyrirspurnum í bókhaldinu.
  • Einnig er hægt að tengja önnur skjöl sem geymast þá einnig sem viðhengi við skráð fylgiskjal.
  • Hægt er að skrá handfærðan innskatt beint á innskattslykil. Eldri aðferð við þetta er þó einnig í fullu gildi.
  • Hægt að skrá skýringar í hauslínur á efnahags- og rekstrareikningi.
  • Hægt að velja að birta alla bókhaldslykla í sundurliðun efnahags- og reksturs einnig þá lykla sem eru án fjárhæða.
  • Tenging skjala undir “Bókhald > Skráning færsla > Tengja skjöl” gerð mun hraðvirkari.
  • Í fyrirspurnum í hreyfingar í bókhaldi er hægt að velja að sjá alla lykla einnig þá sem ekki hafa neina hreyfingu/stöðu.
  • Þegar flett er í eldri færslur beint úr skráningu bókhaldsfærslna er nú alltaf hægt að bora sig niður og skoða allar færslur á fylgiskjali.
  • Áður birtist athugasemd í vsk uppgjöri ef færslur höfðu verið skráðar á staðfest vsk uppgjör. Nú kemur þessi athugasemd einnig þó vsk uppgjör hafi ekki verið staðfest.
  • Í Skattauppgjör undir “Bókhald > Uppgjörsvinnslur > Skattauppgjör” hafa nú verið gerðar verulegar útlitsbreytingar og hægt að velja að sjá alla bókhaldslykla undir skattalyklum með einni aðgerð.

Sölukerfi:
 

  • Undir “Sölukerfi > Stjórnun > Stýringar” er nú hægt að velja að birta magneiningu á sölureikningum.
  • Þegar verið er að fletta vörum undir “Sölukerfi > Skráning og viðhald > Vörur” er hægt að velja að sjá bara virkar vörur.
  • Undir “Sölukerfi > Stjórnun > Endurvekja frumrit reiknings“  sjást núna nánari upplýsingar um reikning áður en hann frumrit hans er endurvakið.

Launabókhald:

  • Hægt er að flytja inn launþega úr csv skrá.
  • Notandi getur skilgreint hvaða launa-, og frádráttarliðir eiga að núllstillast á milli launakeyrslna.
  • Hægt er að skrá sérstaka lífeyrisauka prósentu á þá launþega sem það gildir um skv. sérstökum samningi við t.d. einkaskóla til að jafna lífeyrisrétt kennara við opinbera starfsmenn.
  • Ef orlofsliðir eru skráðir á launþega þá er krafa um að skráð sé orlofs prósenta.
  • Ef valið er að greiða laun í banka en ekki er valinn sérstakur bankareikningur fyrir orlofsgreiðslur þá merkist sjálfkrafa að greiða eigi orlof á sama bankareikning og laun.
thordis