Neyðarnúmer afgreiðslukerfa Reglu 520-1222

Verðskrá

Verðskrá

Veldu pakka sem hentar eða sérsníddu þína eigin lausn. Borgaðu aðeins fyrir þá virkni sem þú þarft. Öll verð eru án vsk. og rukkuð mánaðarlega (nema annað sé tekið fram). Færslufjöldi miðast við uppsafnaðar færslur frá upphafi (ekki færslur á mánuði). Öll verð eru birt með fyrirvara um innsláttarvillu. Verðskráin tók gildi 1. janúar 2026.

Innifalið í öllum áskriftum

Sama hvaða kerfi þú velur – þetta fylgir alltaf með.

  • ÞjónustaÖll almenn símtöl og tölvupóstur.
  • NámskeiðLive Zoom-námskeið í fjárhag, sölu & launakerfum á 2 mánaða fresti.
  • Hýsing og afritunartakaRegla er nútíma skýjalausn – eitt kerfi fyrir alla.
  • NotendurAllir geta fengið aðgang til að skrá og skoða – enginn deilir aðgangi.
  • Engin % gjöld af veltuÞú borgar fast mánaðargjald – ekkert hlutfall af tekjum.

Vinsælustu pakkarnir

Þrír tilbúnir pakkar

Fljótlegasta leiðin að byrja. Veldu pakka sem hentar – og bættu við viðbótum að neðan eftir þörfum.

Tilboð

Byrjendapakki

Fyrir minni rekstur
8.800 kr./mán
Án vsk.
Innifalið
  • Fjárhagur < 1.000 færslur4.400 kr.
  • Sala < 100 reikningar4.400 kr.
  • Laun < 60 launaseðlarInnifalið
  • Verkbókhald < 500 færslurInnifalið
  • Áskrift < 300 áskrifendurInnifalið
  • Innkaup < 50 pantanirInnifalið
  • Samþykkt 1 notandiInnifalið

Staðlaður

Fyrir flest fyrirtæki
15.800 kr./mán
Án vsk.
Innifalið
  • Fjárhagur < 20.000 færslur7.900 kr.
  • Sala < 5.000 reikningar7.900 kr.

Stækkaðu lausnina

Þarftu meira en grunninn?

Bættu við þeim möguleikum sem henta þínum rekstri. Bara einum smelli í burtu – og þú sérð uppfært verð strax í reiknivélinni.

Afgreiðslukerfi (POS)

Ert þú með verslun, kaffihús eða veitingastað? Tengdu greiðslukassann beint við Reglu og haltu utan um sölu, birgðir og uppgjör á einum stað.

Frá
8.900 kr./mán pr. kassa

Bæta í pakkann →

Krefst sölu­kerfis. Uppsetning: 54.000 kr.
Við getum gert þér tilboð í vélbúnað og aukahluti!

Vefverslunartenging

Selur þú á netinu? Tengdu Reglu beint við WooCommerce eða Shopify – pantanir, vörur og birgðir samstillast sjálfvirkt.

Frá
9.300 kr./mán

Bæta í pakkann →

Krefst sölukerfis. Uppsetning: 54.000 kr. · Hærra verð fyrir 1.000+ og 10.000+ vörur.

Verkbókhald & stimpilklukka

Halda utan um verkefni, tíma og viðveru starfsfólks. Hentar verktökum, þjónustufyrirtækjum, veitingastöðum og öðrum sem þurfa tímaskráningu.

Frá
7.900 kr./mán

Bæta í pakkann →

Byrjendaleyfi 4.400 kr. (< 500 færslur) · Almennt verð 7.900 kr. (< 10.000 færslur).

Settu saman þinn pakka

Veldu kerfin sem þú þarft

Byrjaðu á forstillingu fyrir þína atvinnugrein eða hakaðu beint við að neðan. Verðið uppfærist strax. Forstillingar eru aðeins byrjunarpunktur — þú getur bætt við eða fjarlægt kerfi eftir þörfum.

Fljót forstilling


Allir byrja á byrjendaleyfisverði og færast sjálfkrafa yfir á almennt verð þegar ákveðnum færslufjölda er náð. Aðilar með afgreiðslukerfi (POS) eða vefverslunartengingu byrja þó strax á almennu verði.
Grunnkerfi
Viðbætur

Ert þú með bókhaldsstofu?

Við bjóðum sérstök bókhaldsstofuverð fyrir fyrirtæki í þinni umsjá. Hafðu samband við okkur til að fá yfirsýn yfir þau kjör sem standa til boða.

Hafðu samband

Einingaverðskrá

Verð per eining

Grunnkerfi Byrjendaleyfi Almennt verð Magn – viðbót
Fjárhagsbókhald 4.400 kr.1.000 færslur innifaldar 7.900 kr.20.000 færslur innifaldar 2.600 kr.Fyrir hverjar byrjaðar 30.000 færslur umfram 20.000, allt að 10 viðbótargjöldum.
Sölu- og birgðakerfi 4.400 kr.100 reikningar innifaldir 7.900 kr.5.000 reikningar innifaldir 2.600 kr.Fyrir hverja byrjaða 10.000 reikninga umfram 5.000, allt að 10 viðbótargjöldum.
Launakerfi 4.400 kr.60 launaseðlar innifaldir 7.900 kr.500 launaseðlar innifaldir 2.600 kr.Fyrir hverja byrjaða 500 launaseðla umfram 500, allt að 10 viðbótargjöldum.
Verkbókhald(stimpilklukka) 4.400 kr.500 færslur innifaldar 7.900 kr.10.000 færslur innifaldar 2.600 kr.Fyrir hverjar byrjaðar 10.000 færslur umfram 10.000, allt að 10 viðbótargjöldum.
Áskriftarkerfi 4.400 kr.300 áskrifendur innifaldir 7.900 kr.5.000 áskrifendur innifaldir 2.600 kr.Fyrir hverja byrjaða 5.000 áskrifendur umfram 5.000, allt að 10 viðbótargjöldum.
Samþykktarkerfi 7.900 kr.3 notendur innifaldir 4.900 kr.Fyrir hverja 5 notendur umfram 3.
Innkaupa- og pantanakerfi 4.400 kr.50 pantanir innifaldar 7.900 kr.2.500 pantanir innifaldar 2.600 kr.Fyrir hverjar byrjaðar 5.000 pantanir umfram 2.500, allt að 10 viðbótargjöldum.
Húsfélagskerfi 4.400 kr.10 íbúðir innifaldar 7.800 kr.50 íbúðir innifaldar 2.600 kr.Fyrir hverjar byrjaðar 10 íbúðir umfram 50, allt að 10 viðbótargjöldum.

Magnviðbætur leggjast ofan á almennt verð þegar farið er yfir innifalinn fjölda.

Óregluleg notkun

Hentar vel árstímabundnum rekstri. Kerfið er opnað þegar notkun hefst og lokað á milli tímabila.

  • Kerfið opnast í lágmarki 2 mánuði í senn.
  • Árleg lágmarksnotkun samsvarar tveggja mánaða áskrift.

Dæmi (án vsk.):

  • 15.800 kr. – fjárhagsbókhald.
  • 31.600 kr. – fjárhagsbókhald og sölukerfi.
  • 38.800 kr. – fjárhagsbókhald, sölukerfi og rafrænir reikningar.

Geymsla

Kerfi í geymslu þýðir að gögnin eru varðveitt og aðgengileg til fyrirspurna og útprentunar, þó kerfið sé ekki í virkri notkun.

  • Aðgangur að öllum gögnum er tryggður.
  • Eingöngu fyrir skoðun og útprentun.

15.800 kr. á ári (án vsk.) – óháð fjölda kerfa, svo lengi sem þau eru eingöngu í geymslu. Rukkað er eitt ár fram í tímann.

Viðbætur

Viðbótarlausnir og tengingar

Viðbót Verð
Afgreiðslukerfi (POS)Point of Sale 8.900 kr. fyrir hvern kassaUppsetning: 54.000 kr.
Tenging við vefverslunWooCommerce og Shopify 9.300 kr. undir 1.000 vörum14.000 kr. fyrir 1.000+ vörur · 22.000 kr. fyrir 10.000+ vörur · Uppsetning: 54.000 kr.
VefþjónustaAPI-tenging við Reglu 4.900 kr.
B2B 9.600 kr. fyrir fyrstu 6 fyrirtækinEftir það 1.600 kr. per fyrirtæki sem notaði B2B þjónustu í liðnum mánuði.
B2B QR 8.900 kr. fyrir fyrstu 6 fyrirtækinEftir það 1.500 kr. per fyrirtæki sem notaði B2B QR þjónustu í liðnum mánuði.
QR Sala 8.900 kr. fyrir fyrstu 6 QR kóða / staðsetningarEftir það 1.500 kr. per QR kóða / staðsetningu.
DeildirUmfram eina, að hámarki 12 2.800 kr.
Neyðarþjónusta fyrir afgreiðslukerfi 20.000 kr. grunngjald+ 2.000 kr. fyrir hvern kassa (POS)
ÚtflutningskerfiNýtt 49.900 kr.

Þriðji aðili

Tengingar við þriðju aðila

Þjónusta Mánaðargjald Færslugjald
Rafrænir reikningarSending og móttaka 3.600 kr.10 skeyti innifalin 40 kr.fyrir hvern sendan/móttekinn reikning
Þjóðskrá 1.900 kr.10 flettingar innifaldar 20 kr.á uppflettingu umfram 10
Skjalabirting í banka 65 kr.fyrir hvert skjal

Vantar þig frekari aðstoð? Sendu okkur póst á sala@regla.is eða hringdu í 520 1200.