WooCommerce

<< Click to Display Table of Contents >>

Navigation:  Vefverslunartenging > Stillingar >

WooCommerce

 

Á þessari síðu eru skýringar fyrir stillingaratriði fyrir tengingar við WooCommerce.

 

Tengilyklar

woocommercereglakeys

 

Nánar um tengilykla í WooCommerce - uppsetning og WooCommerce aðgangslykill

 

 

Pantanir

 

Þessar stillingar eru fyrir hvernig pantanir af WooCommerce eru skráðar í Reglu.

 

woocommercecordersettings

 

Deild - Deild sem pöntun er skráð á.

 

Lager - Lager sem er notaður fyrir vefverslunartenginguna. Allar birgðauppfærslur sem eru gerðar á þessum lager verða tengdar við vefverslunina, ef vefverslunartengingin er stillt á að halda utan um birgðir.

 

Meðhöndlun pantana - Þessi stilling stjórnar því hvernig er tekið á móti pöntunum af vefversluninni.

 

Pöntun er bókuð þegar greiðsla er samþykkt (mælt með)

Pantanir berast í Geymda reikninga. Þegar Regla fær síðan skilaboð um að greiðsla sé staðfest, er Geymdi reikningurinn bókaður.

Athugið að handvirkar greiðsluleiðir eins og millifærslur senda ekki skilaboð um staðfesta greiðslu og þarf því að bóka þá geymdu reikninga handvirkt.

 

Pöntun er bókuð í geymdan reikning

Pantanir berast í Geymda reikninga, þar sem það er hægt að yfirfara þá og síðan klára bókun.

 

Pöntun er bókuð beint í reikning

Pantanir eru bókaðar beint í reikning.

 

Athugasemd reiknings - Hér er hægt að skrifa inn stuttan texta sem mun birtast fremst í athugarsemdarsvæði reikninga úr vefversluninni.

 

Reitur notaður sem kt. og Lýsigagnalykill fyrir kt.

Ef það er óskað eftir því að reikningar úr vefverslun séu skráðir á kennitölu, þá þarf að útbúa kennitölureit í greiðsluferlið á vefversluninni.

 

Það eru tvær leiðir til að útbúa kennitölureit í WooCommerce

Reiturinn er útbúinn með því að breyta öðrum ónotuðum reit í kennitölureit með því að breyta þýðingunni á reitnum í WooCommerce. Algengir reitir sem eru notaðir eru Fyrirtæki eða Íbúð (address 2).

Reiturinn er sérsniðinn í greiðslusíðu WooCommerce og upplýsingar um reitinn eru sett í lýsigögn (meta-data). Lykillinn fyrir reitinn er settur í þennan reit, þá getur Regla lesið kennitölu af pöntunum.

 

Gestaviðskiptavinur

Fyrir hverja vefverslunartengingu þarf að skrá sérstakan Gestaviðskiptavin, sem allir reikningar frá vefversluninni eru skráðir á.

Þessi viðskiptavinur er ekki notaður þegar kennitölur fylgja pöntunum.

 

Vara sem sendingarkostnaður

Fyrir hverja vefverslunartengingu þarf að skrá vöru sem er notuð fyrir sendingarkostnað. Sendingarkostnaður af pöntunum verður skráður á þessa vöru.

Passið að þessi vara hafi leyft að Leyfa að yfirrita verð. Þegar þessi vara er notuð er alltaf sett inn verðið af pöntuninni.

 

Áskriftir

woocommercesubscription

 

Hægt er að stilla vefverslunartenginguna þannig að áskriftarkerfi Reglu taki á móti pöntunum af vefversluninni.

Athugið að ef það er gert þá mun áskriftarkerfið sjá um að innheimta greiðsluna af pöntuninni, þannig ef þið viljið gera þessa tengingu, passið að þær pantanir séu ekki greiddar í vefversluninni.

 

Vöruflokkur - Hér er valinn vöruflokkur sem er notaður fyrir áskriftir. Vörur sem eru í þessum vöruflokk í Reglu eru seldar í áskrift í vefversluninni.

 

Innheimtumáti - Hér er valinn innheimtumáti sem pantanirnar af vefversluninni fá þegar þær eru keyrðar út sem áskriftir.

 

Áskriftarflokkur - Hér er valinn áskriftarflokkur sem pantanirnar af vefversluninni er settar í.

 

Óþekktar vörur

shopifyunknown

 

Fyrir hverja vefverslunartengingu þarf að skrá svokallaða óþekkta vöru.

Þessi vara er notuð á pantanir í þeim tilvikum þar sem vörur annað hvort finnast ekki í Reglu, eða það vantar á þær Sku númer.

Eins og með vöruna fyrir sendingarkostnað, passið að hún sé skráð með Leyfa að yfirrita verð þar sem verðið sem kemur af pöntununum er alltaf notað.

 

Hér er líka valið í hvaða vsk. flokk þessi vara er. Veljið þann vsk. flokk sem ykkur þykir líklegast að þið séuð að selja úr.

 

Þessi vsk flokkur er einnig notaður þegar vörur eru búnar til í gegnum Frumstilling á vörum. Frumstilling á vörum

 

 

Atburðir og samstilling

 

Hérna koma svo ýmsar stillingar um hvernig tengingin mun hegða sér varðandi uppfærslur á vörum.

 

Það sem er hægt að samstilla milli Reglu og vefverslana er vöruheiti, vöruverð og birgðastaða, en við höfum á áætlun að útvíkka þetta í fleiri vörueiginleika.

 

shopifysyncsettings

 

Vörueigindi til að samstilla - Hér er still hvaða vörueiginleikar eru athugaðir þegar Samstilling vörum er keyrð. Sjá nánar í Samstilling.

 

Atburðir í Reglu

Þegar vara er uppfærð í Reglu - Hér er valið hvaða vörueiginleika á að uppfæra í WooCommerce þegar vara er uppfærð í Reglu.

Þegar vöru er eytt í Reglu - Hér er valið hvernig á að meðhöndla vörur í vefverslun þegar vöru er eytt í Reglu, eða þegar tengingu milli vara er eytt.

 

Atburðir í vefverslun

 

Þegar vara er stofnuð í vefverslun (tilraunaverkefni) - Ef það er hakað í þennan reit þá munu vörur sem eru stofnaðar í Shopify líka verða stofnaðar í Reglu.

Þegar vara er uppfærð í vefverslun (tilraunaverkefni) - Hér er valið hvaða vörueiginleika á að uppfæra í Reglu þegar vara er uppfærð í Shopify.

Þegar vöru er eytt í vefverslun

 

Athugið að tveir af valmöguleikunum fyrir ofan eru tilraunaverkefni og ennþá í þróun. Þessi virkni gæti því ekki virkað sem skyldi og mun eiga til að breytast í framtíðinni.