Færslustýringar

<< Click to Display Table of Contents >>

Navigation:  Fjárhagsbókhald > Viðhald skráa >

Færslustýringar

Færslustýringar hafa þann tilgang að stýra sjálfvirkri bókun færslna  af bankareikningi og kreditkortum.

 

Skráningin skiptist í tvennt:

1. Skilgreiningar: Stillingar sem stýra tegund færslu sem kemur inn í kerfið.

2. Bókun: Hvert færslur bókast við innlestur.

 

Fara þarf í Bókhald>Viðhald skráa>Færslustýringar

clip0139

 

Innskráningarsvæði merkt með stjörnu (*) þarf að fylla út.

 

hmtoggle_folder1Færslulykill

 

hmtoggle_folder1Færslukóði

 

hmtoggle_folder1Greiðandi/Texti (inniheldur)

 

hmtoggle_folder1Lykill

 

hmtoggle_folder1Færslutexti

 

hmtoggle_folder1Kennitala

 

hmtoggle_folder1Merkist sem óklárað

 

Þegar búið er að skrá allt í Gurnnupplýsingar, birtast færslustýringar í lista fyrir neðan.

 

Þó talað sé um sjálfvirka bókun fær fylgiskjal stöðuna “Ófrágengið” í dagbók og er ekki bókað fyrr en það er valið í skráningu og staðfest.

 

Hægt er að breyta öllum upplýsingum í fylgiskjali áður en það er staðfest. Ekki er þó leyft að eyða færslu eða breyta upphæð ef um er að ræða færslu vegna úttektar af bankareiningi eða kreditkortum.

 

Ef fylgiskjal er villulaust þá fær það gula merkingu í dagbók og hægt er að staðfesta það á einfaldann máta í dagbókinni, annars fær það rauða merkingu og þarf að velja það upp í skráningarglugga, lagfæra og staðfesta þar.

 

Neðst á skjámyndinni birtist listi yfir þegar skilgreindar “Færslustýringar” og er hægt að velja af honum til að breyta eða eyða.

 

Áður en færslustýringar eru skráðar í fyrsta sinn er rétt að sækja t.d. einn mánuð af færslum til banka “Sækja færslur” og nota þær færslur til að byggja upp skilgreiningar á færslustýringum. Undir liðnum „Sækja færslur“ er hægt að skilgreina færslustýringar á auðveldan máta.

 

Ef fyrirtæki er með skilgreindar víddir undir Stjórnun > Viðhald skráa > Víddir stýringar / Víddir skilgreiningar bætast við svæði fyrir víddir.