{"id":2914,"date":"2026-10-08T12:05:05","date_gmt":"2026-10-08T12:05:05","guid":{"rendered":"https:\/\/www.regla.is\/?page_id=2914"},"modified":"2026-10-08T12:16:49","modified_gmt":"2026-10-08T12:16:49","slug":"personuverndarstefna","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/www.regla.is\/is\/personuverndarstefna\/","title":{"rendered":"Pers\u00f3nuverndarstefna"},"content":{"rendered":"<p><em>\u00datg\u00e1fa 2.0 \u2014 tekur gildi 1. desember 2026. Kemur \u00ed sta\u00f0 kaflans \u201ePers\u00f3nuvernd\u201c \u00ed <a href=\"\/is\/fyrirtaekid\/skilmalar\/\">skilm\u00e1lum<\/a> dags. 1. \u00e1g\u00fast 2025.<\/em><\/p>\n<p>\u00cd \u00feessari stefnu kemur fram hva\u00f0a pers\u00f3nuuppl\u00fdsingum Regla ehf. safnar, \u00ed hva\u00f0a tilgangi, \u00e1 hva\u00f0a heimild, hve lengi \u00fe\u00e6r eru var\u00f0veittar, hverjum \u00fe\u00e6r eru afhentar, hvernig vi\u00f0 notum \u00fe\u00e6r til a\u00f0 \u00fer\u00f3a \u00fej\u00f3nustu okkar og hva\u00f0a r\u00e9ttindi \u00fe\u00fa \u00e1tt. Um vinnsluna gilda l\u00f6g nr. 90\/2018 um pers\u00f3nuvernd og vinnslu pers\u00f3nuuppl\u00fdsinga og regluger\u00f0 (ESB) 2016\/679 (\u201eGDPR\u201c) eins og h\u00fan hefur veri\u00f0 l\u00f6gfest \u00e1 \u00cdslandi.<\/p>\n<h2>1. Hver erum vi\u00f0?<\/h2>\n<p>Regla ehf., kt. 521208-0230, Su\u00f0urlandsbraut 50, 108 Reykjav\u00edk (\u201eRegla\u201c, \u201evi\u00f0\u201c) b\u00fd\u00f0ur \u00edslenskum fyrirt\u00e6kjum b\u00f3khalds-, verkb\u00f3khalds-, launa-, reikninga- og afgrei\u00f0slukerfi \u00ed sk\u00fdinu og tengda \u00fej\u00f3nustu.<\/p>\n<p>Fyrirspurnir um pers\u00f3nuvernd: <a href=\"mailto:personuvernd@regla.is\">personuvernd@regla.is<\/a>, s\u00edmi 520 1200, e\u00f0a br\u00e9flei\u00f0is merkt \u201ePers\u00f3nuvernd\u201c. Hafa m\u00e1 samband vi\u00f0 pers\u00f3nuverndarfulltr\u00faa okkar \u00e1 sama netfangi.<\/p>\n<h2>2. Tv\u00f6 hlutverk okkar<\/h2>\n<ul>\n<li><strong>Regla sem \u00e1byrg\u00f0ara\u00f0ili.<\/strong> Vi\u00f0 \u00e1kve\u00f0um tilgang og a\u00f0fer\u00f0ir vinnslu uppl\u00fdsinga um tengili\u00f0i og notendur vi\u00f0skiptavina, gesti vefsins, \u00fe\u00e1 sem hafa samband vi\u00f0 okkur, \u00e1skrifendur fr\u00e9ttabr\u00e9fs, \u00fe\u00e1tttakendur \u00e1 n\u00e1mskei\u00f0um, ums\u00e6kjendur um st\u00f6rf og birgja. \u00deessi stefna n\u00e6r til \u00feeirrar vinnslu.<\/li>\n<li><strong>Regla sem vinnslua\u00f0ili.<\/strong> G\u00f6gn sem vi\u00f0skiptavinir skr\u00e1 \u00ed kerfi okkar \u2013 t.d. launa-, b\u00f3khalds- og s\u00f6lug\u00f6gn \u2013 og efni sem vi\u00f0skiptavinir senda okkur vegna a\u00f0sto\u00f0ar (\u00fe.m.t. fylgiskj\u00f6l og skj\u00e1uppt\u00f6kur af afgrei\u00f0slukerfum) vinnum vi\u00f0 fyrir h\u00f6nd vi\u00f0skiptavinarins og samkv\u00e6mt fyrirm\u00e6lum hans. Vi\u00f0skiptavinurinn er a\u00f0 jafna\u00f0i \u00e1byrg\u00f0ara\u00f0ili. Ef \u00fe\u00fa ert t.d. starfsma\u00f0ur vi\u00f0skiptavinar Reglu skaltu fyrst sn\u00faa \u00fe\u00e9r til vinnuveitanda \u00fe\u00edns vegna launauppl\u00fdsinga \u00feinna.<\/li>\n<\/ul>\n<h2>3. Hva\u00f0a uppl\u00fdsingum s\u00f6fnum vi\u00f0 og hvers vegna?<\/h2>\n<table>\n<thead>\n<tr>\n<th>Hverjir<\/th>\n<th>Uppl\u00fdsingar<\/th>\n<th>Tilgangur<\/th>\n<th>Heimild<\/th>\n<\/tr>\n<\/thead>\n<tbody>\n<tr>\n<td>Tengili\u00f0ir og notendur vi\u00f0skiptavina<\/td>\n<td>Nafn, kennitala, netfang, s\u00edmi, fyrirt\u00e6ki, hlutverk, a\u00f0gangsuppl\u00fdsingar, uppl\u00fdsingar um \u00e1skrift og grei\u00f0slur<\/td>\n<td>Veita \u00fej\u00f3nustuna, notendaumsj\u00f3n, reikningager\u00f0, tilkynningar um \u00fej\u00f3nustuna<\/td>\n<td>L\u00f6gm\u00e6tir hagsmunir af ums\u00fdslu vi\u00f0skiptasambandsins (f-li\u00f0ur 1. mgr. 6. gr. GDPR); samningur ef einstaklingurinn er sj\u00e1lfur vi\u00f0skiptavinur (b-li\u00f0ur); lagaskylda vegna b\u00f3khalds (c-li\u00f0ur)<\/td>\n<\/tr>\n<tr>\n<td>Notendur kerfa okkar<\/td>\n<td>Notkunaruppl\u00fdsingar: innskr\u00e1ningar, a\u00f0ger\u00f0ir, lei\u00f0ir um kerfi\u00f0, villubo\u00f0, t\u00e6ki og vafri, IP-tala, t\u00edmasetningar<\/td>\n<td>Rekstur, \u00f6ryggi, villugreining, \u00e1lagsst\u00fdring og umb\u00e6tur \u00e1 \u00fej\u00f3nustu (5. kafli)<\/td>\n<td>L\u00f6gm\u00e6tir hagsmunir af \u00e1rei\u00f0anlegri og \u00f6ruggri \u00fej\u00f3nustu<\/td>\n<\/tr>\n<tr>\n<td>\u00deeir sem hafa samband (vefform, t\u00f6lvup\u00f3stur, s\u00edmi, netspjall, hj\u00e1lparvefur)<\/td>\n<td>Nafn, samskiptauppl\u00fdsingar, fyrirspurnir og sv\u00f6r okkar. S\u00edmt\u00f6l eru ekki hlj\u00f3\u00f0ritu\u00f0.<\/td>\n<td>Svara fyrirspurnum, annast \u00fej\u00f3nustum\u00e1l, b\u00e6ta \u00fej\u00f3nustu (5. kafli)<\/td>\n<td>L\u00f6gm\u00e6tir hagsmunir; samningur ef \u00fe\u00fa ert vi\u00f0skiptavinur<\/td>\n<\/tr>\n<tr>\n<td>\u00deeir sem sj\u00e1st \u00ed skj\u00e1uppt\u00f6kum af afgrei\u00f0slukerfum<\/td>\n<td>A\u00f0ger\u00f0ir \u00e1 skj\u00e1, f\u00e6rsluuppl\u00fdsingar og \u00f6nnur g\u00f6gn sem birtast \u00ed hlj\u00f3\u00f0rita\u00f0ri a\u00f0sto\u00f0<\/td>\n<td>Eing\u00f6ngu til a\u00f0 greina og lagf\u00e6ra tilkynnta villu \u00ed afgrei\u00f0slukerfi<\/td>\n<td>Unni\u00f0 fyrir h\u00f6nd vi\u00f0skiptavinar og samkv\u00e6mt fyrirm\u00e6lum hans<\/td>\n<\/tr>\n<tr>\n<td>Gestir vefsins<\/td>\n<td>IP-tala, uppl\u00fdsingar um t\u00e6ki og vafra, s\u00ed\u00f0ur sem eru sko\u00f0a\u00f0ar, au\u00f0kenni vafrakaka<\/td>\n<td>Reka og verja vefinn, t\u00f6lfr\u00e6\u00f0i, marka\u00f0ssetning<\/td>\n<td>Nau\u00f0synlegar k\u00f6kur: l\u00f6gm\u00e6tir hagsmunir; a\u00f0rar k\u00f6kur (vefgreining og marka\u00f0ssetning): sam\u00feykki, sem \u00fe\u00fa getur breytt e\u00f0a afturkalla\u00f0 hven\u00e6r sem er \u00ed k\u00f6kustillingum vefsins. Sj\u00e1 <a href=\"\/is\/vafrakokustefna\/\">vafrak\u00f6kustefnu<\/a>.<\/td>\n<\/tr>\n<tr>\n<td>\u00c1skrifendur fr\u00e9ttabr\u00e9fs og marka\u00f0stengili\u00f0ir<\/td>\n<td>Nafn, netfang, fyrirt\u00e6ki; hvort fr\u00e9ttabr\u00e9f er opna\u00f0 og hva\u00f0a hlekkir eru valdir<\/td>\n<td>Senda fr\u00e9ttir, uppf\u00e6rslur og tilbo\u00f0<\/td>\n<td>Sam\u00feykki, e\u00f0a regla 94. gr. laga nr. 70\/2022 um fjarskipti um n\u00faverandi vi\u00f0skiptavini<\/td>\n<\/tr>\n<tr>\n<td>\u00de\u00e1tttakendur \u00e1 n\u00e1mskei\u00f0um og vi\u00f0bur\u00f0um<\/td>\n<td>Nafn, samskiptauppl\u00fdsingar, fyrirt\u00e6ki, \u00fe\u00e1tttaka; \u00f3skir um matar\u00e6\u00f0i e\u00f0a a\u00f0gengi ef \u00fe\u00fa l\u00e6tur okkur vita<\/td>\n<td>Halda n\u00e1mskei\u00f0 og vi\u00f0bur\u00f0i, reikningager\u00f0<\/td>\n<td>Samningur e\u00f0a l\u00f6gm\u00e6tir hagsmunir; afdr\u00e1ttarlaust sam\u00feykki fyrir \u00f3skum sem var\u00f0a heilsufar e\u00f0a tr\u00fa<\/td>\n<\/tr>\n<tr>\n<td>Ums\u00e6kjendur um st\u00f6rf<\/td>\n<td>Ferilskr\u00e1, ums\u00f3kn, umsagnir, minnispunktar \u00far vi\u00f0t\u00f6lum<\/td>\n<td>Meta ums\u00f3knir<\/td>\n<td>R\u00e1\u00f0stafanir \u00ed a\u00f0draganda samnings; sam\u00feykki fyrir lengri var\u00f0veislu<\/td>\n<\/tr>\n<tr>\n<td>Birgjar og samstarfsa\u00f0ilar<\/td>\n<td>N\u00f6fn og samskiptauppl\u00fdsingar tengili\u00f0a<\/td>\n<td>Ums\u00fdsla vi\u00f0skiptasambands<\/td>\n<td>L\u00f6gm\u00e6tir hagsmunir<\/td>\n<\/tr>\n<\/tbody>\n<\/table>\n<p><strong>Uppruni.<\/strong> A\u00f0 mestu fr\u00e1 \u00fe\u00e9r e\u00f0a vinnuveitanda \u00fe\u00ednum. Vi\u00f0 notum einnig opinberar skr\u00e1r, s.s. \u00dej\u00f3\u00f0skr\u00e1 \u00cdslands og fyrirt\u00e6kjaskr\u00e1 Skattsins, til a\u00f0 sta\u00f0festa au\u00f0kenni og halda skr\u00e1m r\u00e9ttum.<\/p>\n<p><strong>Marka\u00f0ssetning.<\/strong> Vi\u00f0 sendum rafr\u00e6nt marka\u00f0sefni me\u00f0 sam\u00feykki \u00fe\u00ednu e\u00f0a, \u00feegar um samb\u00e6rilegar v\u00f6rur okkar til n\u00faverandi vi\u00f0skiptavina er a\u00f0 r\u00e6\u00f0a, samkv\u00e6mt 94. gr. laga nr. 70\/2022. \u00cd hverri sendingu kemur fram hver sendandinn er og \u00fear er einf\u00f6ld og gjaldfrj\u00e1ls lei\u00f0 til a\u00f0 afskr\u00e1 sig.<\/p>\n<p><strong>Kennitala.<\/strong> Vi\u00f0 notum kennit\u00f6lu a\u00f0eins \u00feegar notkunin \u00e1 s\u00e9r sk\u00fdran tilgang og er nau\u00f0synleg til a\u00f0 tryggja \u00f6rugga pers\u00f3nugreiningu (13. gr. laga nr. 90\/2018).<\/p>\n<p><strong>Nau\u00f0synlegar uppl\u00fdsingar.<\/strong> \u00c1 ey\u00f0ubl\u00f6\u00f0um og vi\u00f0 skr\u00e1ningu kemur fram hva\u00f0a uppl\u00fdsingar eru nau\u00f0synlegar. \u00c1n \u00feeirra getum vi\u00f0 ekki stofna\u00f0 a\u00f0gang e\u00f0a veitt \u00fe\u00e1 \u00fej\u00f3nustu sem be\u00f0i\u00f0 er um; a\u00f0rar uppl\u00fdsingar eru valkv\u00e6\u00f0ar.<\/p>\n<p><strong>Skj\u00e1uppt\u00f6kur af afgrei\u00f0slukerfum.<\/strong> \u00dej\u00f3nustuteymi\u00f0 okkar tekur stundum upp skj\u00e1inn \u00feegar villa \u00ed afgrei\u00f0slukerfi er greind. \u00de\u00e9r er tilkynnt \u00e1\u00f0ur en upptaka hefst. Uppt\u00f6kur eru eing\u00f6ngu nota\u00f0ar til a\u00f0 leysa vi\u00f0komandi m\u00e1l, a\u00f0eins starfsmenn sem sinna m\u00e1linu hafa a\u00f0gang a\u00f0 \u00feeim og \u00feeim er eytt \u00feegar \u00feeirra er ekki lengur \u00fe\u00f6rf.<\/p>\n<p><strong>Vi\u00f0kv\u00e6mar uppl\u00fdsingar.<\/strong> Vi\u00f0 bi\u00f0jum ekki um vi\u00f0kv\u00e6mar uppl\u00fdsingar (t.d. um heilsufar, tr\u00fa e\u00f0a st\u00e9ttarf\u00e9lagsa\u00f0ild) vegna notendaumsj\u00f3nar e\u00f0a a\u00f0sto\u00f0ar. Vi\u00f0skiptavinir sem nota launakerfi\u00f0 skr\u00e1 hins vegar oft sl\u00edkar uppl\u00fdsingar um starfsf\u00f3lk sitt, t.d. st\u00e9ttarf\u00e9lagsa\u00f0ild vegna f\u00e9lagsgjalda e\u00f0a veikindi vegna launa \u00ed veikindum. \u00de\u00e6r uppl\u00fdsingar vinnum vi\u00f0 fyrir h\u00f6nd vi\u00f0skiptavinar og samkv\u00e6mt fyrirm\u00e6lum hans.<\/p>\n<h2>4. Hve lengi geymum vi\u00f0 uppl\u00fdsingar?<\/h2>\n<table>\n<thead>\n<tr>\n<th>Uppl\u00fdsingar<\/th>\n<th>Var\u00f0veislut\u00edmi<\/th>\n<\/tr>\n<\/thead>\n<tbody>\n<tr>\n<td>Eigin reikningar og b\u00f3khaldsg\u00f6gn Reglu<\/td>\n<td>7 \u00e1r fr\u00e1 lokum reiknings\u00e1rs; \u00e1rsreikningar 25 \u00e1r (20. gr. laga nr. 145\/1994 um b\u00f3khald)<\/td>\n<\/tr>\n<tr>\n<td>G\u00f6gn vi\u00f0skiptavina \u00ed kerfum Reglu (\u00fe.m.t. b\u00f3khalds- og launag\u00f6gn, auk reikninga sem vi\u00f0skiptavinir senda s\u00ednum vi\u00f0skiptavinum)<\/td>\n<td>\u00c1 me\u00f0an vi\u00f0skiptasamband varir; eftir a\u00f0 \u00e1skrift l\u00fdkur ey\u00f0um vi\u00f0 g\u00f6gnunum \u00ed reglulegri hreinsun, \u00fe\u00f3 eigi s\u00ed\u00f0ar en 12 m\u00e1nu\u00f0um fr\u00e1 lokum \u00e1skriftar, nema vi\u00f0skiptavinur \u00f3ski eftir lengri geymslu. Komi vi\u00f0skiptavinur aftur innan \u00feess t\u00edma geta g\u00f6gnin enn veri\u00f0 til sta\u00f0ar, en vi\u00f0 \u00e1byrgjumst \u00fea\u00f0 ekki. Vi\u00f0skiptavinur ber sj\u00e1lfur \u00e1byrg\u00f0 \u00e1 l\u00f6gbundinni var\u00f0veislu eigin b\u00f3khalds.<\/td>\n<\/tr>\n<tr>\n<td>A\u00f0gangs- og samningsuppl\u00fdsingar vi\u00f0skiptavina<\/td>\n<td>\u00c1 me\u00f0an vi\u00f0skiptasamband varir<\/td>\n<\/tr>\n<tr>\n<td>Fyrirspurnir og \u00fej\u00f3nustum\u00e1l<\/td>\n<td>3 \u00e1r fr\u00e1 lokun m\u00e1ls<\/td>\n<\/tr>\n<tr>\n<td>Skj\u00e1uppt\u00f6kur af afgrei\u00f0slukerfum<\/td>\n<td>\u00dear til m\u00e1li\u00f0 er leyst, a\u00f0 h\u00e1marki 60 dagar<\/td>\n<\/tr>\n<tr>\n<td>A\u00f0ger\u00f0asaga \u00ed kerfinu (hver ger\u00f0i hva\u00f0 og hven\u00e6r)<\/td>\n<td>Sem hluti af g\u00f6gnum vi\u00f0skiptavinar, \u00e1 me\u00f0an vi\u00f0skiptasamband varir nema vi\u00f0skiptavinur ey\u00f0i \u00feeim; eftir \u00fea\u00f0 eins og \u00f6nnur g\u00f6gn vi\u00f0skiptavina<\/td>\n<\/tr>\n<tr>\n<td>T\u00e6knilegir notkunar- og kerfisann\u00e1lar<\/td>\n<td>12 m\u00e1nu\u00f0ir; \u00f6ryggisann\u00e1lar allt a\u00f0 24 m\u00e1nu\u00f0um<\/td>\n<\/tr>\n<tr>\n<td>P\u00f3stlisti<\/td>\n<td>\u00dear til \u00fe\u00fa afskr\u00e1ir \u00feig; eftir \u00fea\u00f0 geymum vi\u00f0 a\u00f0eins \u00fea\u00f0 sem \u00fearf til a\u00f0 vir\u00f0a afskr\u00e1ninguna<\/td>\n<\/tr>\n<tr>\n<td>Starfsums\u00f3knir<\/td>\n<td>6 m\u00e1nu\u00f0ir eftir a\u00f0 r\u00e1\u00f0ningarferli l\u00fdkur, nema \u00fe\u00fa sam\u00feykkir lengri t\u00edma<\/td>\n<\/tr>\n<tr>\n<td>G\u00f6gn tekin saman til \u00fej\u00e1lfunar l\u00edkana<\/td>\n<td>Eytt um lei\u00f0 og upprunag\u00f6gnunum er eytt, vi\u00f0skiptavinur af\u00feakkar \u00fej\u00e1lfun e\u00f0a \u00feeirra er ekki lengur \u00fe\u00f6rf<\/td>\n<\/tr>\n<\/tbody>\n<\/table>\n<h2>5. \u00der\u00f3un \u00fej\u00f3nustu og gervigreind<\/h2>\n<p>Regla getur nota\u00f0 g\u00f6gn til a\u00f0 \u00fej\u00e1lfa v\u00e9ln\u00e1msl\u00edk\u00f6n sem gera \u00fej\u00f3nustu Reglu sj\u00e1lfvirkari og n\u00e1kv\u00e6mari. Um \u00fea\u00f0 gilda eftirfarandi reglur:<\/p>\n<ul>\n<li>\u00dej\u00e1lfun er bundin vi\u00f0 afmarka\u00f0an tilgang sem b\u00e6tir \u00fej\u00f3nustu vi\u00f0 vi\u00f0skiptavini Reglu, t.d. lestur reikninga, till\u00f6gur a\u00f0 b\u00f3khaldslyklum og VSK-me\u00f0fer\u00f0 og greiningu villna.<\/li>\n<li>\u00c1\u00f0ur en pers\u00f3nuuppl\u00fdsingar eru nota\u00f0ar skjalfestum vi\u00f0 tilgang, heimild (a\u00f0 jafna\u00f0i l\u00f6gm\u00e6ta hagsmuni) og verndarr\u00e1\u00f0stafanir og framkv\u00e6mum mat \u00e1 \u00e1hrifum \u00e1 pers\u00f3nuvernd \u00feegar \u00feess er krafist.<\/li>\n<li>Vi\u00f0 fjarl\u00e6gjum bein au\u00f0kenni e\u00f0a skiptum \u00feeim \u00fat fyrir gerviau\u00f0kenni; notum aldrei vi\u00f0kv\u00e6mar uppl\u00fdsingar, uppl\u00fdsingar um b\u00f6rn, lykilor\u00f0, bankauppl\u00fdsingar e\u00f0a skj\u00e1uppt\u00f6kur; og pr\u00f3fum l\u00edk\u00f6n svo \u00feau birti ekki g\u00f6gn.<\/li>\n<li>G\u00f6gn \u00far vefgreiningu eru ekki notu\u00f0 til \u00fej\u00e1lfunar.<\/li>\n<li>Vi\u00f0 seljum ekki pers\u00f3nuuppl\u00fdsingar og utana\u00f0komandi gervigreindarveitum er \u00f3heimilt a\u00f0 \u00fej\u00e1lfa eigin l\u00edk\u00f6n \u00e1 g\u00f6gnum okkar e\u00f0a vi\u00f0skiptavina okkar.<\/li>\n<li>Gervigreind stingur upp \u00e1; f\u00f3lk \u00e1kve\u00f0ur. Engar \u00e1kvar\u00f0anir sem hafa r\u00e9ttar\u00e1hrif e\u00f0a samb\u00e6rileg veruleg \u00e1hrif eru teknar af gervigreind eing\u00f6ngu.<\/li>\n<li>\u00de\u00fa getur hven\u00e6r sem er andm\u00e6lt \u00fej\u00e1lfun \u00e1 g\u00f6gnum um \u00feig (8. kafli). Vi\u00f0 h\u00e6ttum \u00fe\u00e1 a\u00f0 nota \u00feau og metum hva\u00f0 \u00fearf a\u00f0 gera var\u00f0andi fyrirliggjandi gagnas\u00f6fn og l\u00edk\u00f6n, sem getur fali\u00f0 \u00ed s\u00e9r ey\u00f0ingu e\u00f0a endur\u00fej\u00e1lfun.<\/li>\n<\/ul>\n<h2>6. Mi\u00f0lun uppl\u00fdsinga<\/h2>\n<p>Vi\u00f0 seljum ekki pers\u00f3nuuppl\u00fdsingar. Vi\u00f0 mi\u00f0lum \u00feeim a\u00f0eins til:<\/p>\n<ul>\n<li>\u00fej\u00f3nustua\u00f0ila sem vinna g\u00f6gn fyrir okkar h\u00f6nd, t.d. vegna h\u00fdsingar, reksturs og afritunar kerfa, sendingar t\u00f6lvup\u00f3sts, reikninga og launase\u00f0la, skrifstofuhugb\u00fana\u00f0ar, \u00fej\u00f3nustukerfis, fr\u00e9ttabr\u00e9fa, vefgreiningar og ums\u00fdslu vi\u00f0skiptatengsla. \u00deeir eru bundnir af samningum sem leggja \u00e1 \u00fe\u00e1 samb\u00e6rilegar skyldur og hv\u00edla \u00e1 okkur;<\/li>\n<li>\u00feri\u00f0ju a\u00f0ila sem \u00fe\u00fa e\u00f0a fyrirt\u00e6ki \u00feitt tengir vi\u00f0 \u00fej\u00f3nustuna, t.d. banka, b\u00f3kara, endursko\u00f0enda, Skattsins e\u00f0a l\u00edfeyrissj\u00f3\u00f0a;<\/li>\n<li>innheimtua\u00f0ila vegna vanskila;<\/li>\n<li>opinberra a\u00f0ila \u00feegar l\u00f6g krefjast \u00feess;<\/li>\n<li>kaupanda e\u00f0a arftaka vi\u00f0 samruna e\u00f0a s\u00f6lu Reglu, enda nj\u00f3ti uppl\u00fdsingarnar samb\u00e6rilegrar verndar.<\/li>\n<\/ul>\n<h2>7. Flutningur \u00fat fyrir EES<\/h2>\n<p>Ef \u00fej\u00f3nustua\u00f0ili vinnur g\u00f6gn utan EES notum vi\u00f0 gilda flutningsheimild, s.s. EU\u2013US Data Privacy Framework (ef vi\u00f0takandinn er votta\u00f0ur) e\u00f0a st\u00f6\u00f0lu\u00f0 samnings\u00e1kv\u00e6\u00f0i \u00e1samt vi\u00f0b\u00f3tarr\u00e1\u00f0st\u00f6funum eftir \u00fe\u00f6rfum. Kerfi Reglu og g\u00f6gn vi\u00f0skiptavina eru h\u00fdst innan EES. Sumir \u00fej\u00f3nustua\u00f0ilar, t.d. vegna \u00fej\u00f3nustukerfis, vefgreiningar og h\u00fdsingar vefsins, geta unni\u00f0 g\u00f6gn \u00ed Bandar\u00edkjunum. \u00de\u00fa getur \u00f3ska\u00f0 eftir uppl\u00fdsingum um sta\u00f0setningar og afriti af verndarr\u00e1\u00f0st\u00f6funum.<\/p>\n<h2>8. R\u00e9ttindi \u00fe\u00edn<\/h2>\n<p>\u00de\u00fa \u00e1tt r\u00e9tt \u00e1 a\u00f0 f\u00e1 a\u00f0gang a\u00f0 uppl\u00fdsingum um \u00feig, f\u00e1 \u00fe\u00e6r lei\u00f0r\u00e9ttar e\u00f0a \u00feeim eytt, f\u00e1 vinnslu takmarka\u00f0a, f\u00e1 uppl\u00fdsingar sem \u00fe\u00fa hefur l\u00e1ti\u00f0 \u00ed t\u00e9 afhentar \u00e1 t\u00f6lvut\u00e6ku formi, andm\u00e6la vinnslu sem byggir \u00e1 l\u00f6gm\u00e6tum hagsmunum (\u00fe.m.t. \u00fej\u00e1lfun l\u00edkana og beinni marka\u00f0ssetningu) og afturkalla sam\u00feykki hven\u00e6r sem er.<\/p>\n<p><strong>Andm\u00e6lar\u00e9ttur \u00feinn.<\/strong> \u00de\u00fa getur hven\u00e6r sem er andm\u00e6lt vinnslu sem byggir \u00e1 l\u00f6gm\u00e6tum hagsmunum okkar \u2013 \u00fe.m.t. notkun gagna um \u00feig til \u00fej\u00e1lfunar l\u00edkana \u2013 og beinni marka\u00f0ssetningu. Vi\u00f0 h\u00e6ttum beinni marka\u00f0ssetningu strax og annarri vinnslu nema vi\u00f0 getum s\u00fdnt fram \u00e1 br\u00fdnar l\u00f6gm\u00e6tar \u00e1st\u00e6\u00f0ur sem ganga framar hagsmunum \u00fe\u00ednum.<\/p>\n<p>Bei\u00f0nir sendist \u00e1 <a href=\"mailto:personuvernd@regla.is\">personuvernd@regla.is<\/a>; ekki \u00fearf s\u00e9rstakt or\u00f0alag. Bei\u00f0nir eru gjaldfrj\u00e1lsar. Vi\u00f0 sv\u00f6rum innan eins m\u00e1na\u00f0ar; ef vi\u00f0 \u00feurfum allt a\u00f0 tvo m\u00e1nu\u00f0i til vi\u00f0b\u00f3tar vegna fl\u00f3kinnar bei\u00f0ni l\u00e1tum vi\u00f0 \u00feig vita af \u00e1st\u00e6\u00f0unni innan fyrsta m\u00e1na\u00f0arins. Vi\u00f0 bi\u00f0jum a\u00f0eins um sta\u00f0festingu \u00e1 au\u00f0kenni ef r\u00f6kstuddur vafi leikur \u00e1 \u00fev\u00ed. Ef vi\u00f0 h\u00f6fnum bei\u00f0ni \u00fatsk\u00fdrum vi\u00f0 hvers vegna.<\/p>\n<p>\u00de\u00fa getur lagt fram kv\u00f6rtun hj\u00e1 Pers\u00f3nuvernd, Laugavegi 166, 105 Reykjav\u00edk, <a href=\"https:\/\/www.personuvernd.is\" target=\"_blank\" rel=\"noopener\">www.personuvernd.is<\/a>.<\/p>\n<h2>9. \u00d6ryggi<\/h2>\n<p>Vi\u00f0 verndum pers\u00f3nuuppl\u00fdsingar me\u00f0 t\u00e6knilegum og skipulagslegum r\u00e1\u00f0st\u00f6funum sem h\u00e6fa \u00e1h\u00e6ttunni, m.a. h\u00fdsingu innan EES \u00ed gagnaverum me\u00f0 ISO\/IEC 27001-vottun, dulk\u00f3\u00f0un \u00ed flutningi og geymslu, fj\u00f6l\u00fe\u00e1tta au\u00f0kenningu og takm\u00f6rku\u00f0um a\u00f0gangi starfsmanna, reglulegri afritun \u00e1 a\u00f0skilinn sta\u00f0 og v\u00f6ktun kerfa.<\/p>\n<h2>10. B\u00f6rn<\/h2>\n<p>\u00dej\u00f3nusta okkar er \u00e6tlu\u00f0 fyrirt\u00e6kjum. \u00cd g\u00f6gnum vi\u00f0skiptavina geta veri\u00f0 uppl\u00fdsingar um einstaklinga yngri en 18 \u00e1ra, t.d. unga starfsmenn; \u00feau g\u00f6gn eru unnin fyrir h\u00f6nd vi\u00f0skiptavinar og aldrei notu\u00f0 til \u00fej\u00e1lfunar.<\/p>\n<h2>11. Breytingar<\/h2>\n<p>Vi\u00f0 tilkynnum vi\u00f0skiptavinum um verulegar breytingar me\u00f0 t\u00f6lvup\u00f3sti og \u00ed kerfinu a.m.k. 30 d\u00f6gum \u00e1\u00f0ur en \u00fe\u00e6r taka gildi. Gildandi \u00fatg\u00e1fa er \u00e1vallt \u00e1 \u00feessari s\u00ed\u00f0u og fyrri \u00fatg\u00e1fur f\u00e1st afhentar s\u00e9 \u00feess \u00f3ska\u00f0.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>\u00datg\u00e1fa 2.0 \u2014 tekur gildi 1. desember 2026. Kemur \u00ed sta\u00f0 kaflans \u201ePers\u00f3nuvernd\u201c \u00ed skilm\u00e1lum dags. 1. \u00e1g\u00fast 2025. \u00cd \u00feessari stefnu kemur fram hva\u00f0a pers\u00f3nuuppl\u00fdsingum Regla ehf. safnar, \u00ed hva\u00f0a tilgangi, \u00e1 hva\u00f0a heimild, hve lengi \u00fe\u00e6r eru var\u00f0veittar, hverjum \u00fe\u00e6r eru afhentar, hvernig vi\u00f0 notum \u00fe\u00e6r til a\u00f0 \u00fer\u00f3a \u00fej\u00f3nustu okkar og hva\u00f0a [&hellip;]<\/p>\n","protected":false},"author":11,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"closed","ping_status":"closed","template":"","meta":{"_acf_changed":false,"footnotes":""},"class_list":["post-2914","page","type-page","status-publish","hentry"],"acf":[],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/www.regla.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/2914","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/www.regla.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/www.regla.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/www.regla.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/users\/11"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/www.regla.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=2914"}],"version-history":[{"count":6,"href":"https:\/\/www.regla.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/2914\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":2950,"href":"https:\/\/www.regla.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/2914\/revisions\/2950"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/www.regla.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=2914"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}