Vsk uppgjör - útreikningur

<< Click to Display Table of Contents >>

Navigation:  Fjárhagsbókhald > Uppgjörsvinnslur > Vsk uppgjör >

Vsk uppgjör - útreikningur

Valið er tímabil sem gera á vsk uppgjör fyrir og smellt á aðgerð Nýtt uppgjör. Einnig er alltaf hægt að skoða eldri uppgjör með því að velja Uppgjörstímabil. Alltaf er hægt að endurreikna eða eyða vsk uppgjöri ef ekki er búið að velja aðgerð Staðfesta og senda til RSK eða Staðfesta án sendingar til RSK.

 

Ef búið var að staðfesta vsk uppgjör og endurreikna þarf vsk krefst kerfið þess að gert sé leiðréttingauppgjör.

 

Þegar vsk uppgjör er staðfest verður til sjálfvirk bókun af vsk lyklum og á uppgjörslykil vsk (9535). Ef uppgjörslykill vsk er einhver annar en 9535 er hann skilgreindur undir Bókhald>Stjórnun>Bókunarstýringar.

 

Með því að smella á stækkunargler FIBSAC~1_img82 er vsk útreikningur skoðaður eftir bókhaldslyklum. Þaðan er svo hægt að velja aftur stækkunargler og er þá vsk útreikningur skoðaður alveg niður á færslur. Dæmi um þessar fyrirspurnir eru sýnd hér neðar.

 

Ef smellt er á stækkunargler fyrir Leiðréttingauppgjör sýnir kerfið bara þau gögn sem hafa áhrif á leiðréttingu.

 

Með því að velja tímabil og smella á Fyrirspurn er hægt að skoða vsk samandreginn á hvaða tímabil sem er t.d. samtölur fyrir allt árið.

 

Með því að smella á stækkunargler FIBSAC~1_img82 er hægt að skoða bókanir sundurliðað á bókhaldslykla og þaðan sundurliðað á færslur alveg eins og þegar um raunverulegt vsk uppgjör er að ræða.

 

Fyrirspurn sem gerð er geymist ekki í kerfinu nema á meðan unnið er með hana.