Sækja/Senda í dagbók

<< Click to Display Table of Contents >>

Navigation:  Fjárhagsbókhald > Skráning færsla > Sækja færslur í banka >

Sækja/Senda í dagbók

 

Eftir að færslur hafa verið sóttar birtist listi yfir sóttar færslur. Svæðin frá og með “Dags.” og til og með “Upphæð” eru svæðin eins og þau koma fyrir í færslu frá banka. Hægra megin á listanum frá og með  “Lykill” og til og með “Kennitala” er það sem kerfið ákveður varðandi bókun á færslum skv. skilgreiningum undir “Færslustýringar”.

 

Alltaf er hægt að velja aðgerð “Eyða færslum” og keyra aftur.

 

Þegar listinn er orðin ásættanlegur þá er framkvæmd aðgerðin “Senda í dagbók” og keyrist þá sjálfkrafa upp „Skráning færslna“ „Skráning“ og með þeim færslum sem sendar voru í dagbók. Allar færslur frá banka bókast undir sér fylgiskjalaröð og bókast sem ófrágengnar. Ef þær eru villulausar merkjast þær með gulu tákni og er þá hægt að staðfesta þær auðveldlega í dagbók, annars merkjast þær með rauðu tákni og þarf þá að velja fylgiskjalið upp í skráningarmynd  og staðfesta þar.

 

Þegar bankafærslur eru sóttar er hægt að velja að senda bara hluta af þeim í dagbók skv. færslulykli t.d. bara innborganir og einnig er hægt að ráða í hvaða röð þær sendast í dagbók. Ekki er þó leyft að sækja fleiri færslur í bankann fyrr en allt það sem síðast var sótt hefur verið sent í dagbók. Til að leyfa þetta er hakað við „Leyfa sendingu bankafærslna í dagbók eftir færslulyklum“ undir „Bókhald Stjórnun > Stýringar“.

 

Ef fyrirtæki er með skilgreindar víddir undir Stjórnun > Viðhald skráa > Víddir stýringar / Víddir skilgreiningar bætast við svæði fyrir víddir.

 

 

FIBSAC~1_img23