<< Click to Display Table of Contents >> Navigation: Sölu og birgðakerfi > Skráning og viðhald > Vörutaxtar > Skrá vörutaxta |
Til þess að skrá nýja vörutaxta þarf að smella á hnappinn 'Stofna' á leitar síðu vörutaxta, þar næst opnast ný síða og lítur hún svona út:
Fyrst þarf að ákveða tegund vörutaxtans, hægt er að velja úr fellilistanum hvort tegundin sé skráð í vikudögum, mánuðum eða tímabilum. Þessi tímabil sem valin eru munu gilda sem virkir tímar vörutaxtans.
Vikudagar Ef valið er vikudagar í tegund þarf næst að velja hvaða vikudaga og á hvaða tímum vörutaxtinn er virkur. Tökum dæmi, ef að veitingastaður ætlar að skrá happy hour sem vörutaxta sem gildir frá kl 18:00 til 21:00 ætti skráningin að líta svona út:
Mánuðir Ef valið er mánuðir í tegund þarf næst að velja hvaða mánuðir og dagar innan þess mánaðar eru skráðir virkir fyrir vörutaxtanum. Tökum dæmi, ef að veitingastaður ætlar að skrá vörutaxta fyrir happy hour á mánaðardögunum 10. - 17. í mánuðum júní - ágúst á árinu 2020 myndi skráningin líta svona út:
Tímabil Ef valið er tímabil í tegund þarf næst að velja dagsetningar fyrir upphafs- og lokadagsetningu tímabilsins. Tökum dæmi, ef að verslun ætlar að setja af stað útsölu sem gildir á dögunum 15.06.2020 til 15.08.2020 myndi skráning vörutaxtans líta svona út: |
Ef hakað er í 'Allar vörur' munu allar vörur úr vöruskrá fyrirtækisins tilheyra vörutaxtanum.
Ef hakað er í 'Vara' þarf að velja staka vöru sem mun tilheyra vörutaxtanum, hægt er að leita eftir vörunúmeri og nafni vörunnar.
Ef hakað er í 'Vörufl' þarf að velja vöruflokk úr fellilistanum sem mun tilheyra vörutaxtanum, hægt er að sjá upplýsingar um stofnun vöruflokka hér.
|
Ef hakað er í 'Allir viðsk.m.' munu allir viðskiptamenn úr viðskiptamannaskrá fyrirtækisins tilheyra vörutaxtanum.
Ef hakað er í 'Viðsk.m.' þarf að velja stakann viðskiptamann sem mun tilheyra vörutaxtanum, hægt er að leita eftir kennitölu eða nafni viðskiptamannsins.
Ef hakað er í 'Viðsk.m.fl.' .arf að velja viðskiptamannaflokk úr fellilistanum sem mun tilheyra vörutaxtanum, hægt er að sjá upplýsingar um stofnun viðskiptamannaflokka hér.
|
Ef fyrirtækið er deildaskipt er hægt að velja úr fellilistanum deild sem vörutaxtinn er virkur á. Ef að deild er valin úr fellilistanum mun vörutaxtinn aðeins verða virkur fyrir þeirri deild. |
Ef setja á fast einingaverð á vöru/vörur í vörutaxtanum skal haka í hér og stimpla inn einingarverð. |
Ef um er að ræða prósentu afslátt/álagningu þarf að haka hér í og slá inn prósentu töluna og haka næst í annað hvort afslátt eða álagningu. |
Ef hakað er í hér mun verðið vera sótt beint úr vöruskrá. |
Í þennan reit er gott að skrá lýsingu á vörutaxtanum svo auðveldara sé að greina hann frá öðrum vörutöxtum. |
Hér er hægt að skrá lágmarks einingafjölda til þess að virkja vörutaxtann. |