Vörulisti

<< Click to Display Table of Contents >>

Navigation:  Sölu og birgðakerfi > Fyrirspurnir >

Vörulisti

Vörulistinn er  undir Sölukerfi>Fyrirspurnir>Vörulisti.

 

Þegar smellt er á hnappinn kemur upp nýr gluggi sem inniheldur einungis vörulistann.

 

Efst til hægri eru allar þær aðgerðir sem hægt er að framkvæma á listann og neðst kemur fram fjöldi vara á listanum. Boðið er upp á fjórar aðgerðir, færa listann í Excel, færa listann í PDF, senda hann í tölvupósti sem viðhengi og prenta listann. Hafa skal í huga að þessar aðgerðir geta tekið allt að mínútu ef listinn er mjög stór.

 

FIBSSA~1_img26

 

Leit.

Hér getur þú slegið inn hluta af vörunúmeri, vöruheiti eða staðsetningu, sem leita á að.

 

Vöruflokkur.

Hér getur þú valið vöruflokk ef einungis á að sýna vörur úr einum slíkum.

 

Staða.

Taka skal hak úr Sýna einungis virkar vörur ef einnig skal sýna óvirkar vörur.