Vara

<< Click to Display Table of Contents >>

Navigation:  Sölu og birgðakerfi > Skráning og viðhald > Reikningar > Skráning reikninga > Vörulína >

Vara

Til þess að skrá reikning þarf að byrja á því að velja þær vörur sem verið er að selja og eiga að vera á reikningnum.

 

Hægt er að gera það á þrjá vegu, í fyrsta lagi  með því að leita eftir heiti vöru, í öðru lagi með því að leita eftir vörunúmeri og í þriðja lagi með því að leita eftir strikamerki.

 

Til þess að leita eftir heiti er skráð inn byrjunin á heiti þeirrar vöru sem bæta skal við reikninginn í svæðið merkt vara og smellt á myndina af gleraugum sem er hægra megin við textasvæðið eða smella á Enter hnappinn á lyklaborðinu.

 

Til þess að leita eftir vörunúmeri er eins farið að nema í stað þess að slá inn byrjun á heiti er slegið inn númer vörunnar í Vörunúmer svæðið.

 

Til þess að leita eftir strikamerki er textabendill settur í innsláttarsvæði og strikamerki skannað af vörunni sjálfri.

 

Ef einungis finnst ein vara þá fyllir kerfið sjálfkrafa út í Vörunúmer, Vara og Upphæð svæðin.

 

Ef kerfið finnur fleiri en eina vöru kemur upp lítill gluggi sem sjá má hér að neðan. Úr þessum glugga er hægt að velja þá vöru sem leitað var eftir, þetta er hægt að gera annars vegar með músinni og hins vegar með lyklaborði. Ef músin er notuð þarf einungis að tvísmella á viðeigandi línu og kerfið sér um afganginn. Ef lyklaborðið er notað þarf að nota örvarnar til að velja vöru og svo smella á Enter hnappinn. Hægt er að velja hvort leita á einungis frá upphafi vörunúmers eða vöruheitis, eða hvort leita á innan textans.

 

FIBSSA~1_img32